Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Skipulags- og byggingarnefnd

Fundargerðir Skipulags- og Bygginganefndar - þriðjudagur 15.des.09 15:15 - Lestrar 980

 

56. fundur

skipulags- og byggingarnefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

þriðjudaginn 15. desember 2009 og hófst hann kl. 08:15

 

 

Fundinn sátu:

Jón Grímsson, Gunnar Bóasson, Benedikt Kristjánsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Gaukur Hjartarson, Arnar Sigurðsson,

 

Fundargerð ritaði:  Gaukur Hjartarson, Skipulags- og byggingarfulltrúi

 

 

Dagskrá:

 

1.

200801042 - Aðalskipulag Norðurþings

 

Á síðustu vikum hefur skipulagsráðgjafi sent lagfærða tillögu skipulagsgreinargerðar, skipulagsuppdrætti og umhverfisskýrslu til nefndarmanna til yfirferðar.  Á fundinum var farið yfir umhverfisskýrsluna en gengið út frá að nefndarmenn sendi sínar ábendingar og athugasemdir varðandi aðra kafla greinargerðar á skipulagsráðgjafa.

Nefndin óskar að eftirfarandi breytingar verði gerðar á umhverfisskýrslu og samsvarandi köflum í skipulagsgreinargerð:

 

1.  Þess er óskað að það verði tekið fram í greinargerð að heimilt verði að byggja gróðurhús á iðnaðarsvæðum í þéttbýli.

2.  Nefndin er sátt við að birta kort yfir berjalönd í umhverfisskýrslu.

3.  Nefndin óskar þess að skilgreind verði heimild til reksturs lítilla veitingahúsa á landbúnaðarsvæðum.

4.  Nefndin fellst á að heimila allt að 15 herbergja gistirými á landbúnaðarsvæðum.

5.  Setja inn í texta "Skoðuð verði hagkvæmni þess að leggja hitaveitu frá Öxarfirði þvert yfir Sléttu til Raufarhafnar og til Langanesbyggðar".

6.  Koma þarf fyrir í greinargerð að skoðaðir verði möguleikar á gasvinnslu úr sorpurðunarsvæðum.

7.  Nefndin leggur til að heimilað verði að reisa allt að 20 m² hús til náttúruskoðunar á útivistarsvæðum.

8.  Nefndin fellst á þá tilfærslu reiðleiða við Húsavík sem fram kemur á tillögu að skipulagsuppdrætti.

9.  Stök veiðihús verði heimiluð á landbúnaðarsvæðum líkt og frístundahús.

10.  Skipulags- og byggingarnefnd leggur til að hverfisverndarsvæði Hv8 þannig að það nái yfir Forvöð og Hallhöfðaskóg.

11.  Skilgreina svæði á aðalskipulagsuppdrætti sem svæði á Náttúruminjaskrá en ekki sem náttúruverndarsvæði.

 

Ennfremur fór nefndin yfir matstöflur umhverfisskýrslu og felur skipulagsfulltrúa að senda lagfærðar töflur á skipulagsráðgjafa.

 

Að lagfæringum greinargerða loknum felur skipulags- og byggingarnefnd skipulagsráðgjöfum að senda skipulagstillöguna til umsagnar hjá lögboðnum umsagnaraðilum.

 

 

 

2.

200909111 - Skipulagsstofnun-Sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum. Álver á Bakka við Húsavík, Þeistareyjavirkjun, Kröfluvirkjun II og háspennulínur frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka Húsavík.

 

Lagt fram til kynningar.

 

 

 

3.

200912022 - Rarik ohf. óskar eftir stofnun 10 lóða undir og umhverfis spennistöðvar á Húsavík

 

Óskað er eftir að skilgreindar verði lóðir undir þegar byggðar spennistöðvar.  Kynntar voru tillögur að hnitsettum uppdráttum fyrir eftirtaldar lóðir:

1.  Grundargarður 4A, 75,7 m².

2.  Háhöfði, 72,0 m².

3.  Garðarsbraut 2A, 34,2 m².

4.  Höfði 1A, 80,0 m².

5.  Búðargil, 47,0 m².

6.  Baughóll 31A, 40,0 m².

7.  Garðarsbraut 85, 43,1 m².

8.  Haukamýri 5, 74,8 m².

9.  Langholt, 55,9 m².

 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að lóðirnar verði stofnaðar og gefnir út lóðarsamningar á eiganda spennistöðvanna.

 

 

 

 

4.

200911101 - Höskuldur Þorsteinsson sækir um leyfi til að skipta um glugga í íbúðarhúsinu að Höfða

 

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

 

 

5.

200911081 - Vera Sigurðardóttir sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahús á lóð úr landi Oddsstaða á Sléttu

 

Óskað er eftir byggingarleyfi fyrir frístundahúsi á frístundahúsalóð á Oddsstöðum á Melrakkasléttu.  Húsið er 108 m² að grunnfleti auk 36 m² rýmis í kjallara.

Skipulags- og byggingarnefnd telur húsið í samræmi við ákvæði lóðarleigusamnings og samþykkir því erindið.

 

 

 

6.

200911061 - Jón Helgi Jóhannsson sækir f.h. Víðiholts ehf. um stofnun lóðar umhverfis íbúðarhúsið að Víðiholti

 

Óskað er eftir samþykki fyrir stofnun 4.539 m² lóðar undir og umhverfis íbúðarhúsið í Víðholti.  Fyrir liggur hnitsettur uppdráttur. 

Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að samþykki verði gefið fyrir útskiptingu lóðarinnar úr jörðinni og að hún verði skilgreind sem íbúðarhúsalóð.

 

 

 

7.

200911060 - Guðmundur Salómonsson f.h eigenda Skálabrekku 3 sækir um leyfi til að endurbyggja hluta hússins eftir skemmdir

 

Skipulags- og byggingarfulltrúi kynnti stöðu málsins.

Skipulags- og byggingarnefnd samþykkir erindið með fyrirvara um skil á fullnægjandi gögnum, þ.m.t. skriflegu samþykki meðeigenda í parhúsinu.

 

 

 

8.

200912020 - Kristinn B. Steinarsson sækir um leyfi til að einangra og klæða utan íbúðarhúsið að Reistarnesi.

 

Skipulags-og byggingarnefnd samþykkir erindið.

 

 

 

9.

200912021 - Einar G. Jónasson f.h. Brautarenda ehf. sækir um leyfi fyrir breyttri starfsemi á jarðhæð Garðarsbrautar 39

 

Óskað er eftir samþykki fyrir rekstri hárgreiðslustofu og snyrtistofu á jarðhæð Garðarsbrautar 39.

Skipulags- og byggingarnefnd felur skipulags- og byggingarfulltrúa að grenndarkynna erindið meðeigendum í húsinu.

 

 

 

10.

200912035 - Sýslumaðurinn á Húsavík-Ósk um umsögn vegna rekstrarleyfis til handa Ólöfu Sveinsdóttur/Árdalur ehf

 

Um er að ræða heimagistingu með morgumnat. 

Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu leigð út rými sem ætluð eru til gistingar skv. samþykktum teikningum af húsinu.

 

 

 

 

 

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 13:45

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning