Fréttir
Framkvæmda- og þjónustunefnd
framkvæmda- og þjónustunefndar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
miðvikudaginn 16. desember 2009 og hófst hann kl. 16:00
Fundinn sátu:
Aðalsteinn J. Halldórsson, Rúnar Þórarinsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Guðmundur Magnússon, Tryggvi Jóhannsson, Trausti Aðalsteinsson, Sveinn Birgir Hreinsson,
Fundargerð ritaði: Tryggvi Jóhannsson og Sveinn Hreinsson,
Dagskrá:
|
200911083 - Friðrik Jónsson f.h. Almannavarna Þingeyinga-Björgunarbúnaður almannavarna Þingeyinga |
||
|
|
Á fundinn komu Friðrik Jónsson, formaður og framkvæmdastjóri Almannavarna Þingeyinga og Jón Ásberg Salómonsson slökkviliðsstjóri og gerðu grein fyrir málinu. Almannavarnir Þingeyinga hafa með bréfi farið þess á leit að björgunarbúnaður, sem notaður hefur verið við umferðarslys og verið hefur í umsjón lögreglunnar, verði færður í vörslu Slökkviliðs Húsavíkur til eignar. Slökkviliðið mundi þá sinna þeim verkefnum þar sem þessa búnaðar er þörf, annast hann og reka. Einhver stofnkostnaður mun verða við breytinguna s.s. þjálfunarkostnaður og kostnaður við uppsetningu búnaðar og brýnt að S.H. séu tryggðir fjármunir til að standa undir honum. Því er það hugmynd Almannavarna að þau framlög sem renna til þessa rekstrar í dag munu að mestum hluta fylgja verkefninu.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir erindið og beinir þeim tilmælum til byggðaráðs að tryggt verði að það fjármagn sem nú rennur til þessa verkefnis færist til Slökkviliðsins. |
|
|
|
|
|
|
2. |
200912046 - Tré á Húsavík með sérstakt verndargildi |
|
|
|
Jan Klitgaard, garðyrkjustjóri Norðurþings kom á fundinn og gerði grein fyrir úttekt sem hann hefur gert á trjám í húsagörðum og opnum svæðum á Húsavík. Undanskilin er tré í Skrúðgarði og "Hjartarlundi" við Baughól. Í úttektinni er gerð grein fyrir þeim trjám sem merkilegust geta talist og þá hvers vegna. Undanfarin ár hafa nokkur merkileg tré verið fjarlægð eða skemmd og því telur garðyrkjustjóri nauðsynlegt að móta stefnu um verndun þeirra.Í framhaldi af úttektinni mun garðyrkjustjóri upplýsa fólk um gildi trjáa í görðum þess og sérstöðu þeirra. Garðyrkjustjóri gerir það að tillögu sinni að hann veiti fólki endurgjaldslausar ráðleggingar varðandi umhirðu trjánna og aðstoði við hana gegn því að trén verði vernduð með formlegum hætti t.d. samningi til ákveðins tíma. Verndunin feli í sér að ekki megi skaða/höggva tréð án samþykkis garðyrkjustjóra sveitarfélagsins.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir erindið og felur Jan að gera drög að samningi milli sveitarfélagsins og eigenda trjáa sem hægt er að leggja fyrir. |
|
|
|
|
|
|
3. |
200911095 - Veraldarvinir-Ósk um samstarf við sveitarfélagið |
|
|
|
Veraldarvinir óska eftir samstarfi við sveitarfélagið eins og var fyrir tveimur árum og nokkur ár þar á undan en þá plöntuðu hópar á þeirra vegum trjám í nágrenni Húsavíkur. Garðyrkjustjóri gerði nefndinni grein fyrir málinu en hann hefur áður verið í samskiptum við slíka hópa.
Framkvæmda- og þjónustunefnd hafnar erindinu að þessu sinni. |
|
|
|
|
|
|
4. |
200911094 - Sveinbjörn Á Lund/Kristinn Jóhann Lund-Ósk um hækkun á tilboði vegna grenjavinnslu |
|
|
|
Sveinbjörn Lund og Kristinn Jóhann Lund verktakar í refaveiði á Vestur-Sléttu óska eftir hækkun á samningi, sem þeir gerðu í febrúar 2008 og rennur út 31. ágúst 2010, en engin ákvæði eru í samningnum um vísitöluhækkanir. Þeir benda á að eldsneytiskostnaður, sem er stærsti útgjaldaliðurinn, hefur aukist mikið eins og raunar allur annar kostnaður líka. Alls eru samningar um refaveiði á fimm svæðum austan Jökulsár og tveir samningar um minkaveiði.
Í ljósi þess að samningurinn rennur út 31. ágúst 2010 hafnar Framkvæmda- og þjónustunefnd erindinu.
|
|
|
|
|
|
|
5. |
200911087 - Saltvík ehf- Ósk um að leggja reiðveg milli heimreiðanna í Saltvík. |
|
|
|
Bjarni Páll Vilhjálmsson sækir um fyrir hönd Saltvíkur ehf. um leyfi a) til að leggja veg á milli heimreiðanna í Saltvík samkvæmt meðfylgjandi uppdrætti. Um er að ræða veg á brún móans. Og b) til að setja ræsi í læk sem rennur í Gvendarbás til að auðvelda umferð ríðandi og gangandi fólks yfir lækinn. Jafnframt er óskað eftir að fogþ sjái til þess að ekki sé girt fram á bjargbrún svo umferð gangandi og ríðandi fólks með strandlengjunni sé ekki hindruð að óþörfu.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir lið a) með því skilyrði að verkið verði unnið í samvinnu við Vegagerð ríkisins og landleigjendur á svæðinu. Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir lið b). Framkvæmda- og þjónustunefnd tekur undir þau sjónarmið sem koma fram varðandi umferð með strandlengjunni.
|
|
|
|
|
|
|
6. |
200911030 - Umhverfisverðlaun Norðurþings 2009 |
|
|
|
Málinu frestað á síðasta fundi.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir að veita:
Íslandspósti á Húsavík viðurkenningu fyrir snyrtimennsku, Duggugerði 9 á Kópaskeri fyrir endurbætur á húsi og lóð, Skakkhorni á Raufarhöfn fyrir vel heppnaðar endurbætur, Hafnarstétt 3 á Húsavík fyrir vel heppnaðar endurbætur og Reykjavöllum í Reykjahverfi fyrir snyrtimennsku. |
|
|
|
|
|
|
7. |
200912047 - Tillaga um niðurrif á Hvammi(gamalt hesthús) |
|
|
|
Umsjónarmaður fasteigna Norðurþings óskar eftir með bréfi að fá að rífa Hvamm, sem er gamalt hesthús. Húsið sem er orðið mjög illa farið og hættulegt hefur verið notað sem geymsla fyrir ýmiskonar dót aðallega tengt skíðamannvirkjum og þjónustustöð. Þessu dóti verður komið í geymslu annars staðar.
Framkvæmda- og þjónustunefnd samþykkir erindið. |
|
|
|
|
|
|
8. |
200912017 - Guðmundur Magnússon Dreifbýlisfulltrúi sækir um styrk úr Þjóðhátíðarsjóði |
|
|
|
Dreifbýlisfulltrúi sótti um styrk til þjóðhátíðarsjóðs vegna verkefnis á Raufarhöfn og Hraunhafnartanga: Söguskilti, síldarárin og fóstbræðrasaga. Setja á upp skilti á Höfðanum við Raufarhöfn og Þorgeirsdys á Hraunhafnartanga. Áætlaður kostnaður eru tæp 1300 þúsund. Þjóðhátíðarsjóður samþykkti að veita 400 þús. til verkefnisins.
Lagt fram til kynningar. |
|
|
|
|
|
Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45
Til baka



