Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Hafnanefnd

Fundargerðir Hafnarnefndar - miðvikudagur 13.jan.10 09:15 - Lestrar 775

  21. fundur

hafnanefndar Norðurþings

haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,

miðvikudaginn 13. janúar 2010 og hófst hann kl. 12.00

Fundinn sátu:

Jón Grímsson, Jón Helgi Björnsson, Hilmar Dúi Björgvinsson, Bergur Elías Ágústsson,

Fundargerð ritaði:  Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri

Dagskrá:

1.

200912053 - Siglingastofnun Íslands-Samgönguáætlun 2009-2012, viðskiptaáætlun hafnarsjóðs

Hafnanefnd felur hafnastjóra að senda inn nauðsynleg gögn vegna framkvæmda við Snásugarð og Suðurgarð í Húsavíkurhöfn. Þessar framkvæmdir eru inn á Samgönguáætlun 2009-2012.

Hafnanefnd leggur ríka áherslu á að framkvæmdum við Suðurgarð verði lokið eins fljótt og mögulegt er.

 

2.

200801042 - Aðalskipulag Norðurþings

Hafnanefnd gerir engar athugasemdir við drög að aðalskipulagi Norðurþings 2009 til 2029.

 

3.

201001023 - Ósk um umsögn vegna endurvigtunarleyfis

Hafnanefnd  veitir jákvæða umsögn vegna umsóknar GPG fiskverkunar á Húsavík um endurvigtunarleyfi og mælir með því að það verði veitt.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 12.30

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning