Fréttir
Sveitarstjórn Norðurþings
38. fundursveitarstjórnar Norðurþings
haldinn í stjórnsýsluhúsi Norðurþings,
þriðjudaginn 19. janúar 2010
Fundinn sátu:Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Jón Helgi Björnsson, Friðrik Sigurðsson, Jón Grímsson, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Rúnar Þórarinsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Aðalsteinn J. Halldórsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,
Fundargerð ritaði: Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill sveitarstjóra
Dagskrá:
|
201001037 - Umhverfisviðurkenning Norðurþings 2009 |
||
|
|
Forseti sveitarstjórnar, Gunnlaugur Stefánsson og sveitarstjóri, Bergur Elías Ágústsson, veittu Umhverfisverðlaun Norðurþings fyrir árið 2009. 1. Íslandspósti á Húsavík var veitt viðurkenning fyrir snyrtimennsku og veitti Björk Siguróladóttir henni viðtöku. 2. Eigendur Duggugerðis 9 á Kópaskeri, Eyþór Margeirsson og Kristjana Erna Helgadóttir, veittu viðtöku viðurkenningu fyrir endurbætur á húsi og lóð.
3. Fyrir hönd eiganda "Skakkhorns" á Raufarhöfn veitti Óskar Óskarsson viðtöku viðurkenningu fyrir vel heppnaðar endurbætur.
4. Fyrir hönd Langanes hf., eiganda Hafnarstéttar 3 á Húsavík, veitti Bjarni Aðalgeirsson, viðtöku viðurkenningu fyrir vel heppnaðar endurbætur. 5. Reykjavöllum í Reykjahverfi var veitt viðurkenning fyrir snyrtimennsku og veitti Sigtryggur Garðarsson henni viðtöku. |
|
|
|
|
|
|
2. |
201001002F - Byggðarráð Norðurþings - 113 |
|
|
|
Fundargerð 113. fundar byggðarráðs afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.Fundargerðin staðfest með umræðu um liði 2.1., 2.8., 2.3., 2.14., 2.15. Aðrir liðir staðfestir án umræðu.
|
|
|
|
2.1. |
200905017 - Kynning gesta í byggðarráði |
|
|
|
Til máls tóku: Friðrik og Bergur. |
|
|
||
|
|
2.2. |
201001007 - Bréf frá Landgræðslu ríkisins til veiðifélags litlárvatna |
|
|
2.3. |
201001005 - Ályktun um samgöngumál |
|
|
|
Til máls tóku: Bergur og Jón Helgi. |
|
|
||
|
|
2.4. |
201001006 - Svavar Pálsson, úrsögn úr kjörstjórn |
|
|
2.5. |
201001001 - Samband íslenskra sveitarfélaga-Fasteingamat sem grundvöllur fráveitugjalds |
|
|
2.6. |
200912084 - Sýslumaðurinn á Húsavík- Ósk um umsögn vegna breytinga á rekstrarleyfi Skúlagarðs. Nýr rekstraraðili Axel Yngvason |
|
|
2.7. |
200912082 - Samkeppniseftirlitið-Álit Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2009- Opinber útboð, samkeppni og samkeppnishindranir |
|
|
2.8. |
200912078 - Eignarhaldsfélagið Fasteign hf-Fundarboð hluthafafundar 12. janúar 2010 |
|
|
|
Til máls tóku: Friðrik, Bergur og Gunnlaugur. |
|
|
||
|
|
2.9. |
200912071 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga-Áætlun um úthlutun framlaga til sveitarfélaga vegna nýbúafræðslu 2010 |
|
|
2.10. |
200912070 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga-Áætluð úthlutun framlags vegna sérþarfa fatlaðra nemenda í grunnskólum fjárhagsárið 2010 |
|
|
2.11. |
200912063 - Sylvía Dröfn Jónsdóttir f.h. Félagsmiðstöðvarinnar Beisið-Ósk um húsnæði |
|
|
2.12. |
200912055 - 770. Fundur stjórnar sambands íslenskra sveitarfélaga |
|
|
2.13. |
201001011 - Áætluð framlög - Eyþing 2010 |
|
|
2.14. |
201001009 - Tún - söluheimild |
|
|
|
Til máls tóku: Friðrik, Bergur og Gunnlaugur. |
|
|
||
|
|
2.15. |
201001010 - Garðarsstofa ehf - húsnæði |
|
|
|
Til máls tóku: Friðrik og Bergur. |
|
|
||
|
|
2.16. |
201001013 - 3ja ára fjárhagsáætlun 2010 |
|
|
|
|
|
3. |
201001003F - Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 57 |
|
|
|
Fundargerð 57. fundar skipulags- og byggingarnefndar afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.Liður 3.2. og 3.5 eru afgreiðsluliðir.Aðrir liðir fundargerðarinnar staðfestir án umræðu. |
|
|
|
3.1. |
200801042 - Aðalskipulag Norðurþings |
|
|
3.2. |
200805064 - Breyting á aðalskipulagi Húsavíkurbæjar 2005-2025 |
|
|
|
Samkvæmt bókun skipulags- og byggingarnefndar liggur neðangreint erindi fyrir til afgreiðslu í sveitarstjórn.Til máls tóku: Jón Grímsson Lokið er kynningu á breytingu aðalskipulags Húsavíkur og lauk athugasemdafresti 6. janúar s.l. Athugasemdir bárust frá fjórum aðilum innan athugasemdafrests. Þær voru eftirfarandi: 1 og 2. Athugasemdir frá Ragnari Þór Árnasyni f.h. eigenda Skarða og Skarðaborgar og samhljóða athugasemdir frá Jóni Björnssyni f.h. Lífsvals ehf.a) Gerð er athugasemd við línustæði um Jónsnípuskarð og Árnahvamm og lagt til að línan verði lögð austan við Höfuðreiðarmúla.b) Bent er á að línulögn vestan Lambafjalla liggi um viðkvæmt gróðurlendi þar sem unnin hefur verið kostnaðarsöm landgræðsla. Eins muni sjónmengun af línuleið verða mikil vegna landfræðilegra aðstæðna.c) Farið er fram á að skýrt verði í skipulagi að Reykjaheiðarveg megi nota áfram í tengslum við landbúnað þó hann verði skráður sem einkavegur.d) Gerð eru sú krafa að frágangur vegsvæðis og annars rasks verði eins góður og hægt er og opin jarðvegssár vegna framkvæmdanna verði grædd upp að verki loknu.e) Farið er fram á að í aðalskipulagi verði kvöð um að samráð skuli haft við landeigendur vegna fyrirhugðrar efnistöku.f) Lagst er gegn því að efnistökusvæði merkt HG-02 verði skilgreint sem efnistökusvæði.g) Lagst er gegn því að efnistökusvæði merkt JN-01 verði skilgreint sem efnistökusvæði.h) Gerð er sú krafa að skilgreint sé í aðalskipulagi að lagning vegslóða að/frá efnistökusvæðum verði lagðir í samráði við landeigendur. Að verki loknu verði efnistökunámum lokað, vegslóðar afmáðir og svæðin grædd upp. 3. Athugasemd frá Kristjáni Halldórssyni f.h. Alcoaa) Óskað er eftir að norðurmörk iðnaðarlóðar, og þar með þynningarsvæði, við Bakka fylgi sveitarfélagamörkum.b) Bent er á að ríkisstjórn Íslands er ekki lengur þátttakandi í viljayfirlýsingu vegna undirbúnings álvers á Bakka og því þurfi að leiðrétta orðalag þar að lútandi í umhverfisskýrslu. 4. Athugasemd frá Gunnar Óla Hákonarsyni f.h. Árbótarbús ehfa) Gerð er athugasemd við sveitarfélagamörk sem teiknuð eru á skipulagsuppdrátt milli Árbótar og Núpa í Aðaldal og Þverár í Reykjahverfi. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að athugasemdir verði afgreiddar á eftirfarandi hátt: 1 og 2 - Athugasemdir frá Lífsvali ehf og eigendum Skarða og Skarðaborgara) Staðsetning línustæðis um Jónsnípuskarð var samþykkt í svæðisskipulagi háhitasvæða í Þingeyjarsýslum 2007-2025 og þar með búið að festa það línustæði í skipulagi sem sýnt er í aðalskipulagsbreytingunni. Þá voru einnig metnir kostir þeirrar leiðar sem landeigendur leggja nú til en sú leið valin sem sýnd er í tillögu að breyttu aðalskipulagi. Lagt er til að skipulagstillögunni verði ekki breytt til samræmis við tillögu landeigenda. Tillagan samþykkt samhljóða b) Þarna er í raun um að ræða ábendingu sem taka verður tillit til við afgreiðslu framkvæmdaleyfis. Nefndin telur ekki tilefni til breytinga á skipulagsstillögunni. Sérstaklega er mælst til þess í svæðisskipulaginu að skoðaðir verði möguleikar á notkun trémastra við línulögn vestan Lambafjalla til að draga úr sjónrænum áhrifum á landslagsheildir og víðerni. Tillagan samþykkt samhljóða. c) Lagt er til að bætt verði setningu kafla 3. Breyting á vegi: "Vegurinn verður áfram opinn almennri umferð eins og núverandi Reykjaheiðarvegur". Tillagan samþykkt samhljóða. d) Lagt er til að bætt verði eftirfarandi setningu við kafla 3. Breyting á vegi: "Við breytingu á vegi skal þess gætt að hverskonar rask verði sem minnst og að gengið verði frá vegstæði með eins góðum hætti og hægt er að verki loknu og opin jarðvegssár grædd upp." Tillagan samþykkt samhljóða. e og h) Lagt er til að bætt verði eftirfarandi málsgrein í kafla 4. Staðsetning efnistökusvæða: Við efnistöku skal gæta umhverfissjónarmiða sérstaklega. Samráð skal haft við landeigendur um fyrirhugaða efnistöku og vegslóða frá efnistökusvæðum. Að verki loknu verði efnistökunámum lokað og þær græddar upp. Einnig verði vegslóðar/vegir að efnistökusvæðum afmáðir og græddir upp." Tillagan samþykkt samhljóða. f) Lagt er til að efnistökusvæði merkt HG-02 verði fellt út úr aðalskipulagsbreytingunni að ósk landeigenda. Tillagan samþykkt samhljóða. g) Lagt er til að efnistökusvæði merkt JN-01 verði fellt út úr aðalskipulagsbreytingunni að ósk landeigenda. Tillagan samþykkt samhljóða. 3 - Athugasemdir frá Alcoaa) Lagt er til að eftirfarandi texta verði bætt inn í kafla 5. Breyting á iðnaðarlóð: "Norðurmörk lóðarinnar fylgi sveitarfélagamörkum. Gert er ráð fyrir að þynningarsvæðið fylgi mörkum iðnaðarsvæðis." Samsvarandi breyting verði gerð á skipulagsuppdrætti. Tillagan samþykkt samhljóða. b) Umhverfisskýrsla verði lagfærð til samræmis við ábendinguna þannig að setning um gilda viljayfirlýsingu verði: "Auk ofangreindra skipulagsáætlana er í gildi viljayfirlýsing milli Ríkisstjórnar Íslands, Norðurþings, Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar um samstarf á sviði orkurannsókna, orkunýtingar og atvinnuuppbyggingu í Þingeyjarsýslum." Tillagan samþykkt samhljóða. 4 - Athugasemd frá Árbótarbúi ehfa) Í samráði við landeiganda að Þverá í Reykjahverfi fellst skipulags- og byggingarnefnd á að sveitarfélagamörk eru rangt skilgreind á þessu svæði á þessum stað. Nefndin telur þó ekki þörf á breytingu á þeim uppdrætti sem nú er til umfjöllunar enda þessi landamerki ekki til umfjöllunar í þeirri skipulagsbreytingu sem til kynningar var. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að láta gera viðeigandi leiðréttingu á landamerkjum í drögum að nýju aðalskipulagi Norðurþings. Tillagan samþykkt samhljóða. Skipulags- og byggingarnefnd telur þær breytingar á skipulagstillögunni sem hér eru lagðar til óverulegar og leggur til við sveitarstjórn að skipulagstillagan verði samþykkt með breytingunum sem skilgreindar eru hér að ofan. Skipulags- og byggingarfulltrúa er falið að senda skipulagsgögnin til yfirferðar hjá Skipulagsstofnun og staðfestingar ráðherra. Tillagan samþykkt samhljóða. |
|
|
||
|
|
3.3. |
200912056 - Samkeppniseftirlitið-Álit Samkeppniseftirlitsins nr 3/2009 Skipulag, lóðarúthlutanir og samkeppni |
|
|
3.4. |
200912047 - Tillaga um niðurrif á Hvammi(gamalt hesthús) |
|
|
3.5. |
200912054 - Gautur Þorsteinsson f.h. Og fjarskipta ehf. sækir um framlengt stöðuleyfi fyrir fjarskiptabúnað við verslunina Ásbyrgi |
|
|
|
Til máls tók: Friðrik, Aðalsteinn Örn, Dóra Fjóla, Jón Grímsson, Jón Helgi, Rúnar, Þráinn Friðrik óskaði eftir að fá að sitja hjá við afgreiðslu málsins vegna hagsmunatengsla. Aðalsteinn Örn leggur fram eftirfarandi bókun:"Umrætt fjarskiptaloftnet er á 18.5 metra háum tréstaur sem staðsettur er við verslunina Ásbyrgi. Staurinn var reistur án þess að formlegt leyfi væri komið og í óþökk þjóðgarðsvarðar enda er hann mun hærri en gildandi deiliskipulag leyfir. Þrátt fyrir það veitti sveitarstjórn Norðurþings leyfi fyrir staurnum til 6 mánaða á fundi sínum þann 19. maí 2009. Eigendur eru búnir að hafa nægan tíma til að finna aðra lausn fyrir fjarskiptamastur og er það skoðun undirritaðs að fjarlægja beri staurinn strax enda mikið umhverfislýti".Aðalsteinn Örn Snæþórsson - sign. Samkvæmt bókun skipulags- og byggingarnefndar liggur neðangreint erindi fyrir til afgreiðslu í sveitarstjórn. Óskað er eftir því að stöðuleyfi fyrir fjarskiptabúnað Og fjarskipta ehf í þjónustumiðstöðinni í Ásbyrgi verði framlengt til 19. september 2010. Þar til verði unnið að varanlegri lausn á fjarskiptaþjónustu Og fjarskipta á svæðinu.Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við sveitarstjórn að veitt verði áframhaldandi stöðuleyfi til 19. september 2010 fyrir fjarskiptabúnaði Og fjarskipta við Ásbyrgi, enda telur nefndin fyrirtækið veita mikilvæga þjónustu á svæðinu jafnframt því sem hún telur ekki raunhæft að byggja upp nýja aðstöðu fyrr en komandi sumar.Hilmar leggst gegn áframhaldandi stöðuleyfi fyrir fjarskiptabúnaðinum. Tillagan samþykkt með atkvæðum Gunnlaugs, Jóns Helga, Rúnars, Aðalsteins J. Jóns Grímssonar, Þráins og Dóru Fjólu.Aðalsteinn Örn greiddi atkvæði á móti tillögunni. Friðrik sat hjá við afgreiðslu. |
|
|
||
|
|
3.6. |
200912083 - Sýslumaðurinn á Húsavík-Ósk um umsögn vegna breytinga á rekstrarleyfi Skúlagarðs. Nýr rekstaraðili verður Axel Yngvason |
|
|
|
|
|
4. |
201001006F - Framkvæmda- og þjónustunefnd Norðurþings - 26 |
|
|
|
Fundargerð 26. fundar framkvæmda- og þjónustunefndar afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.Fundargerðin staðfest með umræðu um liði 4.4. og 4.2. |
|
|
|
4.1. |
201001017 - Umferðarstofa, varðar umferðaröryggisáætlun |
|
|
4.2. |
200912046 - Tré á Húsavík með sérstakt verndargildi |
|
|
|
Til máls tóku: Bergur, Aðalsteinn Örn, Aðalsteinn J., Jón Grímsson og Dóra Fjóla |
|
|
||
|
|
4.3. |
200807074 - Fráveita - Norðurþing |
|
|
4.4. |
200911028 - Framkvæmda- og þjónustunefnd- Fjárhagsáætlun 2010 |
|
|
|
Til máls tóku: Friðrik og Aðalsteinn J. |
|
|
||
|
|
4.5. |
201001029 - Atvinnuátaksverkefni Skógræktarfélags Íslands 2010 |
|
|
4.6. |
200801077 - Staðardagskrá 21 |
|
|
|
|
|
5. |
201001007F - Hafnanefnd Norðurþings - 21 |
|
|
|
Fundargerð 21. fundar hafnanefndar afgreidd og staðfest eins og einstök erindi bera með sér.Fundargerðin staðfest með umræðu um lið 5.1. |
|
|
|
5.1. |
200912053 - Siglingastofnun Íslands-Samgönguáætlun 2009-2012, viðskiptaáætlun hafnarsjóðs |
|
|
|
Til máls tók: Jón Helgi. |
|
|
||
|
|
5.2. |
200801042 - Aðalskipulag Norðurþings |
|
|
5.3. |
201001023 - Ósk um umsögn vegna endurvigtunarleyfis |
|
|
|
|
Til baka



