Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Félags- og barnaverndarnefnd Norðurþings

Fundargerðir félags- og barnaverndarnefndar - fimmtudagur 21.jan.10 10:17 - Lestrar 940
14. fundur félags- og barnaverndarnefndar Norðurþings  haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 21. janúar 2010 og hófst hann kl. 15:00

Fundinn sátu:

Olga Gísladóttir, Rúnar Þórarinsson, Dóra Fjóla Guðmundsdóttir, Kristjana M. Kristjánsdóttir, Freydís Jóna Feysteinsdótti, Kolbrún Gunnarsdóttir,

Fundargerð ritaði:  Freydís Jóna Freysteinsdóttir, Félagsmálafulltrúi

Dagskrá:

1.

201001024 - Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð hækkar samkvæmt vísitölu um áramót.  Stuðst er áfram við viðmiðun af hálfu ráðuneytisins.

 

2.

201001026 - Heimaþjónusta - gjaldskrá

Samþykkt hækkun á gjaldskrá félagslegrar heimaþjónustu og viðmiðum um tekjur:

1. taxti, tekjuviðmið kr.          0 - 150.000 á mánuði, kr. 0,00 fyrir hverja unna klukkustund

2. taxti, tekjuviðmið kr. 150.001 - 193.000 á mánuði, kr. 490 fyrir hverja unna klukkustund

3. taxti, tekjuviðmið kr. 193.001 eða hærri mánaðartekjur, kr. 988 fyrir hverja unna klukkustund

 

3.

201001027 - Barnavernd - útköll á árinu 2009

Kolbrún Gunnarsdóttir leggur fram eftirfarandi bókun: Sveitarstjórn Norðurþings  endurskoði ákvörðun sína um að leggja niður bakvaktir barnaverndarstarfsmanna hjá Félagsþjónustu Norðurþings.

 

4.

201001025 - Siðareglur

Lagt fram til kynningar.

 

5.

201001031 - Útseld þjónusta

Félagsþjónusta Norðurþings mun taka að sér að sinna starfsendurhæfingu fyrir Stéttarfélagið Framsýn, vegna samnings um þjónustu á vegum starfsendurhæfingarsjóðsins, Virk.  Um er að ræða 30% starfshlutfall í 6 mánuði og munu verða greiddar 2.200.000 kr. fyrir þetta verkefni, en mögulega verður ráðinn aðili til að sinna þessu verkefni sem rúmast þá innan þess kostnaðarramma sem fylgir verkefninu.  Verkefnið felur í sér að virkja atvinnuleytendur á þjónustusvæðinu. 

 

6.

200911069 - Félagsmálaráðuneyti-Tilfærsla þjónustu við fatlaða frá ríki til sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

 

7.

200912018 - Jafnréttisstofa-Beiðni um afhendingu jafnréttisáætlunar, ásamt framkvæmdaáætlun

Samþykkt að verkefnið verði falið dreifbýlisfulltrúa og að nefnd verði skipuð/endurvakin sem hafi umsjón með verkefninu.

 

8.

201001028 - Hlutfall kynja störfum sveitarstjórnar

Umræður um leiðir til að fjölga konum í pólitík.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:45

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning