Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Byggðarráð Norðurþings

Fundargerðir Byggðarráðs - fimmtudagur 11.feb.10 08:09 - Lestrar 946
115. fundur byggðarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 11. febrúar 2010 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Aðalsteinn Örn Snæþórsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

 

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill sveitarstjóra

Dagskrá:

1.

201002041 - Herðubreið ehf. ósk um umsögn vegna leyfisveitinga

Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

 

2.

201001071 - Dvalarheimilið Hvammur, stjórnarfundur varðandi Útgarð 4 - greiðsluhlutdeild og leigugjald

Byggðarráð felur Jóni Helga Björnssyni að fara með umboð sveitarfélagsins á auka-aðalfundi Dvalarheimilisins Hvamms sf. sem fram fer á þriðjudaginn 16. febrúar n.k.

 

3.

201002025 - Lánasjóður sveitarfélaga, ósk um leyfi til að birta upplýsingar um stöðu lána sveitarfélagsins hjá sjóðnum

Byggðarráð samþykkir erindi Lánasjóðs sveitarfélaga um birtingu upplýsinga um stöðu lána hjá sjóðnum.

 

4.

201002022 - 771. fundargerð samb. ísl. Sveitarfélaga

Lagt fram til kynningar.

 

5.

200902086 - Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið-Auglýsing til sveitarstjórna um úthlutun byggðarkvóta fiskveiðiársins 2009/2010

Byggðarráð felur sveitarstjóra, Bergi Elíasi Ágústssyni, að sækja um byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2009/2010.

 

6.

201002004 - Bréf frá Framsýn til Iðnaðarráðuneytis varðandi vanefndir á framlögum til Vaxtarsamnings Norðausturlands

Lagt fram til kynningar.

 

7.

201002043 - Frá Samb. Ísl.sveitarfélaga, vinnufundur um yfirfærslu málefna fatlaðra

Byggðarráð telur mikilvægt að fulltrúar sveitarfélagsins mæti á vinnufundinn um yfirfærsluna.

 

8.

201002044 - Kaupsamningur vegna Hafnarstétt 5a

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi kaupsamning.

 

9.

201002045 - Kaupsamningur vegna Hafnarstétt 5b

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi kaupsamning.

 

10.

201002046 - Kaupsamningur vegna Hafnarstétt 5c

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi kaupsamning.

 

11.

201002047 - Eyþing - fundur um eflingu sveitarstjórnarstigsins

Lagt fram til kynningar.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:10

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning