Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Byggðarráð Norðurþings

Fundargerðir Byggðarráðs - fimmtudagur 18.feb.10 09:10 - Lestrar 884
116. fundur byggðarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 18. febrúar 2010 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Bergur Elías Ágústsson, Guðbjartur Ellert Jónsson,

Fundargerð ritaði:  Guðbjartur Ellert Jónsson, Fjármálastjóri - staðgengill sveitarstjóra

Dagskrá:

1.

201002067 - Dvalarheimili aldraðra Húsavík, kynning

Á fund byggðarráðs mætti Soffía Steinarsdóttir, framkvæmdastjóri Dvalarheimilis aldraðra sf., og fór yfir stöðu dvalar- og hjúkrunarrýma við stofnunina.  Í máli framkvæmdastjóra kom fram að fækka eigi dvalarrýmum stofnunarinnar umfram það sem nú þegar er til staðar.  Slíkt er óásættanlegt, meðan ekki koma hjúkrunarrými á móti til að mæta brýnni þörf fyrir þjónustu.   Byggðarráð felur sveitarstjóra að óska eftir fundi með fulltrúum félagsmálaráðuneytisins vegna málsins. 

 

2.

201002068 - Vatnajökulsþjóðgarður, kynning

Á fund byggðarráðs mætti Þorkell Lindberg Þórarinsson, framkvæmdastjóri Náttúrustofu Norðausturlands, og fór yfir stöðu verkefna vegna Vatnajökulsþjóðgarðar.  Byggðarráð felur sveitarstjóra, Bergi Elíasi Ágústssyni, að óska eftir að framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Vatnajökulsþjóðgarðar komi til fundar við byggðarráð hið fyrsta.

 

3.

201002069 - Dvalarheimili aldraðra Húsavík, fundargerðir 2010

Lagt fram til kynningar.

 

4.

201002066 - Stofnskrá sjálfseignarstofnunar Garðarshólmi SES

Byggðarráð leggur til við sveitarstjórn að fyrirliggjandi stofnskrá verði samþykkt með áorðnum breytingum.

 

5.

201002063 - Skjálftafélagið á Kópaskeri, ósk um samstarf

Byggðarráð tekur jákvætt í samstarf við Skjálftafélagið á Kópaskeri og felur sveitarstjóra að leggja drög að samstarfssamningi þar um.

 

6.

201001013 - 3ja ára fjárhagsáætlun 2010

Byggðarráð samþykkir að vísa 3ja ára áætlun til fyrri umræðu í sveitarstjórn.

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 17:20

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning