Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Byggðarráð Norðurþings

Fundargerðir Byggðarráðs - fimmtudagur 15.júl.10 08:37 - Lestrar 566
126. fundur byggðarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 15. júlí 2010 og hófst hann kl. 16:00

Fundinn sátu:

Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Olga Gísladóttir, Friðrik Sigurðsson, Bergur Elías Ágústsson,

Fundargerð ritaði:  Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri

Dagskrá:

 

1.

201006010F - Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 65

Fundargerð 65 fundar skipulag- og byggingarnefndar staðfest og afgreidd eins og einstök erindi bera með sér.

 

1.1.

200801042 - Aðalskipulag Norðurþings

1.2.

200709268 - Deiliskipulag hesthúsahverfis

Byggðarráð samþykkir tillögu um deiliskipulag hesthúsahverfis í Saltvík með fyrirvörum  Skipulags- og byggingarnefndar.

 

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

1.3.

201006067 - Samvinnunefnd um miðhálendi Íslands, ósk um umsögn v/Kröflulínu 3

1.4.

201006045 - Míla ehf. óskar eftir leyfi til að leggja ljósleiðarastreng

1.5.

200908026 - Gráni ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir reiðhús í Saltvíkurlandi

1.6.

201006050 - Jónína Á Hallgrímsdóttir óskar eftir leyfi til að gera garðútgang af n.h. Laugarbrekku 5

 

1.7.

201006071 - Gautur Þorsteinsson f.h. Og fjarskipta ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir fjarskiptastöð á Smjörhólsfelli

1.8.

201006075 - Akursel ehf. sækir um byggingarleyfi fyrir starfsmannahús að Akurseli

1.9.

201006065 - Almar Eggertsson f.h. Önnu Jónínu Valgeirsdóttur sækir um leyfi til að einangra og múrklæða utan húsið að Sólbrekku 14

1.10.

201006058 - Norðursigling, ósk um leyfi til að setja niður 3 fánastangir til móts við miðasölu fyrirtækisins

1.11.

201006005 - Ósk Þorkelsdóttir f.h. Flóka ehf. sækir um leyfi fyrir breyttri starfsemi í hluta hússins að Hafnarstétt 21

1.12.

201006076 - Jóna Matthíasdóttir f.h. Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga hf. sækir um leyfi fyrir skilti á Bökugarði

 

1.13.

200909058 - Norðursigling ehf-Bryggjuaðstaða í Húsavíkurhöfn

1.14.

201006083 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Hrísateigur 2.

1.15.

201006043 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Elvari Daða Guðjónssyni, Grímstungu, Mývatnssveit

1.16.

201006022 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitinga til handa Ósk Þorkelsdóttur f.h. Flóka ehf.

1.17.

201007008 - Haukur Haraldsson f.h. Dvalaheimilis aldraðra Húsavík sækir um leyfi til að skipta um þakefni að Litlahvammi 1-9

1.18.

201007007 - Sigurjón Benediktsson f.h. óstofnaðs hlutafélags sækir um amsk. 50 ha iðnaðarlóð að Bakka

1.19.

201007005 - Garðræktarfélag Reykhverfinga hf. sækir um byggingarleyfi fyrir sólstofu við gamla íbúðarhúsið að Hveravöllum

1.20.

201007009 - Vigfús Sigurðsson og Ásdís Kjartansdóttir sækja um leyfi til að breyta glugga á bílskúr að Höfðabrekku 10

1.21.

201007010 - Kristrún Ísaksdóttir sækir um byggingarleyfi fyrir frístundahús á lóð úr landi Undirveggjar

1.22.

201007013 - Erna Björnsdóttir og Börkur Emilsson sækja um leyfi til að breyta efstu hæð hússins að Stóragarði 7

1.23.

201007014 - Erna Björnsdóttir og Börkur Emilsson óska eftir samþykki nefndarinnar að eignarhlutur þeirra að Stóragarði 7 verði skráður sem ein eign

1.24.

201006069 - Guðrún Erla Jónsdóttir f.h. Bjarnabúðar ehf. sækir um leyfi til að sameina tvær íbúðir að Garðarsbraut 12

1.25.

201007018 - Jón Helgi Björnsson f.h. landeigenda Laxamýrar sækir um samþykki fyrir stofnun frístundalóðar nr. 7 í Laxárlundi

Byggðarráð samþykkir stofnun frístundalóðar númer 7 í Laxárlundi.

 

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

 

2.

201006094 - Hitaveita Öxarfjarðarhéraðs

Sveitarsjóri lagði fram tillögu um aukna aðkomu sveitarfélagsins að Hitveitu Öxarfjarðarhéraðs ehf. Byggðarráð felur sveitarstjóra að vinna áfram að málinu og leggja það fram til ákvörðunar á seinni stigum.

 

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

3.

201007028 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Stefáni Guðmundssyni vegna Flókahúss

Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

4.

201007027 - Leigjendur verbúða á neðri hæð að Hafnarstétt 17 óska eftir viðræðum um kaup á verbúðunum

Byggðarráð felur sveitarstjóra að ræða við bréfritara samkvæmt umræðum á fundinum.

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

5.

201007024 - Jafnréttisstofa-Skipan í nefndir og ráð hjá Norðurþingi

Lagt fram til kynningar.

 

6.

201007023 - Samband íslenskra sveitarfélaga-Boðun XXIV. landsþings

Lagt fram til kynningar.

 

7.

201007021 - Bændasamtök Íslands-Sorphirðugjald vegna búrekstrar

Byggðarráð felur sveitarstjóra að svara erindinu.

Friðrik óskar bókað.

Ég legg á það áherslu að íbúum sveitarfélagsins sé ekki mismunað við innheimtu sorphirðugjalda. 

Gunnlaugur óskar bókað.

Ég óska eftir útfærðri tillögu frá Friðriki Sigurðssyni um hvernig hann telji best að haga innheimtu sorphirðugjalda í sveitarfélaginu. Á síðustu 4 árum hefur Friðrik ekki gert athugasemdir við núverandi fyrirkomulag eða innheimtu sorphirðugjalda í sveitarfélaginu.

Friðrik óskar bókað.

Tillagan er einföld, hver íbúi greiði fyrir sorphirðu og eyðingu á eigin sorpi.

 

8.

201007032 - OH - höfuðstólslækkun á lánum

Byggðarráð samþykkir áframhaldandi sjálfsskuldarábyrgð vegna breytinga á lánasamningi við Íslandsbanka.

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

9.

201007036 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Gamla Bauk ehf.

Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

Áheyrnarfulltrúarnir Friðrik og Trausti gera ekki athugasemd við ofangreinda afgreiðslu.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 18:00

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning