Norðurþing

Norðurþing

Fréttir

Byggðarráð Norðurþings

Fundargerðir Byggðarráðs - fimmtudagur 22.júl.10 08:14 - Lestrar 542

127. fundur byggðarráðs Norðurþings haldinn  í stjórnsýsluhúsi Norðurþings, fimmtudaginn 22. júlí 2010 og hófst hann kl. 15:00

Fundinn sátu:

Jón Helgi Björnsson, Gunnlaugur Stefánsson, Þráinn Guðni Gunnarsson, Trausti Aðalsteinsson, Friðrik Sigurðsson, Bergur Elías Ágústsson,

Fundargerð ritaði:  Bergur Elías Ágústsson, Sveitarstjóri

Dagskrá:

1.

201007046 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Hjálmari B. Hafliðasyni

Byggðarráð staðfestir hér með samþykki sveitarfélagsins Norðurþings fyrir brennu sunnan við gömlu rækjuverksmiðjuna á Húsavík. En slík brenna hefur verið ár hvert í tilefni Mærudaga. Umsjónaraðili brennunnar er Húsavíkurstofa og ábyrgðamaður er Hjálmar Bogi Hafliðason verkefnisstjóri Mærudaga 2010. Brennan verður föstudaginn 23 júlí kl. 22:00.

 

2.

201007045 - Framsýn, ályktun um tillögur AGS

Byggðarráð Norðurþings tekur heilshugar undir ályktun Framsýnar og varar við því að auka en frekar á skattbyrði fólks. Ástæðan er einföld, nú er nóg komið.

 

3.

201007043 - Samband ísl. sveitarfélaga, námskeið um lýðræði í sveitarfélögum 6. september

Lagt fram til kynningar.

 

4.

201007042 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Evelyn Foelsche

Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

 

5.

201007039 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Garðarsbraut 81, íbúð 203

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi söluheimild.

 

6.

201007040 - Ósk um söluheimild vegna íbúðar að Grundargarði 6, nr. 101

Byggðarráð samþykkir fyrirliggjandi söluheimild.

 

7.

201007038 - LSH, bréf varðandi skipun í stjórn félagsins

Byggðarráð samþykkir að stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurbæjar verði skipuð eftirfarandi aðilum.

Jón Helgi Björnsson, sveitarstjórnarfulltúi. Ása Gísladóttir fyrir hönd starfsmannafélags Húsavíkurbæjar og Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri.

 

8.

201007037 - Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur, ósk um styrk til stofnunarinnar

Byggðarráð lýsir yfir ánægju með  hugmynd að uppbyggingu stofnunar um tungumála og menningarrannsóknir. Hugmyndin snýst um að reisa 3.000.- fermetra byggingu og er áætlaður kostnaður um 1.300.- milljónir króna.

Sveitarstjórn Norðurþings hefur á undanförnum árum lagt metnað sinn í að verja grunnþjónustu við íbúa sveitarfélagsins á erfiðum tímum sem munu að öllum líkindum vara áfram næstu misseri. Í ljósi þess að sveitarfélagið þarf að forgangsraða munu þarfir mennta- og félagsmála innan sveitarfélagins hafa forgang. Sveitarfélagið Norðurþing hafnar því beiðni um að veita fjárstyrk í verkefnið að svo stöddu.

 

9.

201007004 - Stjórn sambands ísl. sveitarfélaga, 775. fundur

Lagt fram til kynningar.

 

10.

201006095 - Jöfnunarsjóður sveitarfélaga, varðandi úthlutun aukaframlags 2010

Lagt fram til kynningar.

 

11.

201007023 - Samband íslenskra sveitarfélaga-Boðun XXIV. landsþings

Byggðarráð skipar eftirfarandi fulltrúa á Landsþing Sambands íslenska sveitarfélaga sem haldið verður á Akureyri 29 september nk.

Tilnefndir eru;

Jón Helgi Björnsson og Þráinn Gunnarsson til vara.

Gunnlaugur Stefánsson og Trausti Aðalsteinsson til vara.

Að auki situr Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri þingið með málfrelsi og tillögurétt.

 

12.

201006083 - Sýslumaðurinn á Húsavík, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi H. Örlygssyni v/Hrísateigur 2.

 Byggðarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.

 

13.

201001071 - Útgarður 4

Byggðarráð staðfestir fyrir hönd sveitarfélagsins Norðurþings, hlutdeildarábyrgð sína á yfirdrætti DA sf. hjá Landsbanka Íslands. Upphæðin nemur að hámarki 22,8 milljónir króna.

 

 

Fleira ekki gert. Fundi slitið kl. 15:30

 

 


Til baka

Upplýsingar um vefkerfi

moya - Útgáfa 1.7 2006 - Stefna ehf

Innskráning