Nýjustu fréttir
-
Ljósmyndasamkeppni Norðurþings
fimmtudagur 2.sep.10 13:33Norðurþing efnir til ljósmyndasamkeppni vegna opnunar á nýjum vef sveitarfélagsins. Samkeppni verður í eftirfarandi flokkum: „Æskan og mannlífið", „Náttúran í Norðurþingi" og „Mitt Norðurþing".
Veitt verða peningaverðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hverjum flokki.
-
Ganga Ferðafélagsins Norðurslóðar
miðvikudagur 1.sep.10 09:10Næstkomandi laugardag, þann 4. september, er fyrirhuguð ganga á vegum Ferðafélagsins Norðurslóðar. Gengið verður meðfram Jökulsá að austan frá Vestaralandi í Öxarfirði og að Gloppu.
-
Viðgerð á hitaveitustofnæð
miðvikudagur 25.ágú.10 13:14Mánudaginn 30. ágúst verður gert við hitaveitustofnæð í bæinn. Heitt vatn verður tekið af kl. 8:30 og verður vatnslaust fram eftir degi. Svæðin sem verða vatnslaus eru fyrir neðan bakka og í hluta norðurbæjar. Þeir íbúar norðurbæjarins sem hafa vatn gætu orðið varir við þrýstifall. Fyrir nánari upplýsingar eru hægt að hafa samband við Orkuveitu Húsavíkur í síma 464-0900.
-
Laust starf við ræstingar á Grænuvöllum
þriðjudagur 17.ágú.10 15:43Auglýst er eftir starfsmanni í ræstingar við leikskólann Grænuvelli á Húsavík.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. september 2010.
Við leitum að áhugasömum, bjartsýnum og jákvæðum einstaklingi sem er tilbúin að starfa með okkur af fagmennsku og áhuga.








