Fara í efni

Fréttir

Páskagetraun!

Kíktu við á bókasafninu og taktu þátt í léttri og skemmtilegri páskagetraun 3. og 4. apríl. Verðlaunin eru frí DVD-mynd að láni yfir páskana :)
03.04.2012
Tilkynningar

DVD - tilboð: 2 fyrir 1 !!!

Þú leigir eina mynd og færð aðra fría, þarf ekki að skila fyrr en á mánudag.
23.03.2012
Tilkynningar

Eitthvað fyrir alla!

Það finna allir eitthvað við sitt hæfi á bókasafninu, og alltaf bætist við nýtt efni:
21.03.2012
Tilkynningar

Ljósmyndasamkeppni

08.03.2012
Tilkynningar

Vinningshafi í lestrarátaki febrúarmánaðar

Í dag var dreginn út einn heppinn þátttakandi í lestrarátaki febrúarmánaðar. Það var hún Elín Pálsdóttir sem hafði heppnina með sér að þessu sinni og hlaut hún bók að launum. Við þökkum öllum kærlega fyrir þátttökuna og minnum á að lestur er bestur :)  
02.03.2012
Tilkynningar

Myndir frá öskudegi

Á öskudaginn kom fjöldi furðudýra, skrímsla og alls kyns kvikinda hingað á safnið og fékk sælgæti að launum fyrir fagran söng. Kunnum við þeim okkar bestu þakkir fyrir komuna, myndir má sjá á facebook-síðu bókasafnsins: http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150624209139712.412102.337663244711&type=1  
29.02.2012
Tilkynningar

Bókaverðlaun barnanna 2012

Bókasafnið á Húsavík tekur þátt í verkefninu "Bókaverðlaun barnanna" og hvetur alla 6 -12 ára krakka til að kíkja við á bókasafninu og taka þátt í að velja bestu barna- og/eða unglingabók síðasta árs.      
14.02.2012
Tilkynningar

Lestrarátak í febrúar!

Í febrúar hvetjum við grunnskólabörn til að vera dugleg að koma á safnið og taka þátt í skemmtilegum leik:
02.02.2012
Tilkynningar

Alltaf eitthvað nýtt!

Það finna allir eitthvað við sitt hæfi á bókasafninu. Hér má sjá dæmi um glænýjar hljóðbækur sem voru að koma í útlán hjá okkur:
27.01.2012
Tilkynningar

Nýjar myndir á DVD

Vissir þú að ef mynd er takin á fimmtudegi eða föstudegi þarf ekki að skila fyrr en á mánudag? Nýtt efni á DVD, allir velkomnir.
12.01.2012
Tilkynningar

Lesum meira á nýju ári!

Bókasafnið óskar safngestum, bókaunnendum, Þingeyingum og landsmönnum öllum farsældar á nýju ári með þökkum fyrir liðið ár. Í upphafi árs er algengt að fólk reyni að bæta lífsvenjur sínar og kort í líkamsræktarstöðvar rjúka út sem heitar lummur. Því viljum við minna á að lestur er leikfimi hugans. Er þá ekki upplagt að hefja nýja árið með auknum lestri?  
02.01.2012
Tilkynningar

Gleðileg jól!

23.12.2011
Tilkynningar