Auglýsing frá Bókasafninu á Húsavík
20.04.2007
Tilkynningar
Vika bókarinnar
23. apríl er alþjóðlegur dagur bókarinnar.
Af því tilefni verða
Sektarlausir dagar
vikuna 23.-28 . apríl nk.
Nú er um að gera að drífa sig að skila bókum
sem eru löngu komnar á tíma.
Í tilefni af viku bókarinnar viljum við minna á að Bókasafnið
býður upp á heimsendingarþjónustu annan hvern föstudag
allan ársins hring, án gjalds, til eldri borgara og annarra
sem eiga erfitt með að komast í safnið.
Bókasafnið á Húsavík
Stóragarði 17 - sími 464 6165 - bokasafn@husavik.is