Tónleikar í Skólahúsinu á Kópaskeri föstudaginn 26. nóvember kl: 21:00
Flutt verða lög af nýútkominni plötu Hugarró. Hugarró er geisladiskur með 11 vel völdum bænalögum sem hafa verið útsett með það fyrir augum að ná fram ákveðnum hugleiðslublæ og þannig undirstrika tengsl hugleiðslu og bænar. Hugarró er fyrsta sólóplata Margrétar Árnadóttur söngkonu og mun hluti af ágóðanum renna til Píeta samtakanna á Akureyri, sem sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða. Um útsetningar og hljóðfæraleik sá Kristján Edelstein gítarleikari. Þau Margrét og Kristján koma bæði fram á tónleikunum. Gera má ráð fyrir að aðventan setji svip sinn á dagskrána einnig.
Flutt verða lög af nýútkominni plötu Hugarró. Hugarró er geisladiskur með 11 vel völdum bænalögum sem hafa verið útsett með það fyrir augum að ná fram ákveðnum hugleiðslublæ og þannig undirstrika tengsl hugleiðslu og bænar.