Aðalfundur Hitaveitur Öxarfjarðarhéraðs hf.
08.03.2021
Tilkynningar
AÐALFUNDAR HITAVEITU ÖXARFJARÐARHÉRAÐS HF.
Aðalfundur Hitaveitu Öxafjarðarhéraðs hf. 430894 2779 vegna rekstrarársins 2020 verður haldinn í fundarsalnum Öxi Kópaskeri þann 25. mars 2021, kl. 21.00.
Á dagskrá aðalfundar verða eftirfarandi mál:
- Skýrsla stjórnar félagsins um starfsemi þess síðastliðið starfsár.
- Ársreikningur fyrir liðið reikningsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
- Kosning stjórnar og varastjórnar.
- Kosning endurskoðanda.
- Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
- Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með tap félagsins á reikningsárinu.
- Önnur mál sem löglega eru uppborin
Kópaskeri 08.03.2021
F.h. stjórnar Hitaveitu Öxafjarðarhéraðs hf.
Gunnþóra S Jónsdóttir
Hluthafar geta nálgast ársreikning 2020 á skrifstofu HÖ Bakkagötu 10 Kópaskeri, eða fengið hann sendann í tölvupósti. sími: 464 9802 netf :gunn@nordurthing.is