Kirknaganga við Öxarfjörð
26.03.2018
Tilkynningar
Ferðafélagið Norðurslóð heldur þeim vana sínum að efna til gönguferðar á föstudaginn langa. Sá dagur er að þessu sinni 30. mars. Nú verður gengið frá Jökulsá á Fjöllum að Skinnastaðarkirkju. (4 km .)
Á leiðinni verður m.a. komið við í Akurgerði, þar sem Guðmundur Örn Benediktsson fræðir fólk um skógræktina. Sr. Jón Ármann Gíslason sýnir göngufólki kirkjuna og segir sögu hennar.
Í göngulok verður boðið upp á hressingu og síðan verða þeir sem ekki vilja ganga til baka ferjaðir á upphafsstað. Mæting við gatnamótin á Hraununum austan við brúna (við veginn upp á Hólssand) kl. 13:00. Ferðafélagið hvetur til góðrar mætingar í hressandi og skemmtilega útivist.