Forstöðumaður Bókasafnsins á Húsavík
Vegna fæðingarorlofs er auglýst eftir forstöðumanni að Bókasafninu á Húsavík til afleysinga í 100% starf
í allt að 2 ár frá 1. september 2008. Um er að ræða fjölbreytt starf á nútímalegu safni.
Við leitum að einstaklingi sem býr yfir skipulagshæfileikum, færni í mannlegum samskiptum og hefur reynslu af öflun og miðlun upplýsinga.
Æskilegt er að umsækjendur hafi lokið námi í bókasafns – og upplýsingafræðum eða annarri háskólamenntun sem
nýtist í starfi og hafi góða þekkingu á tölvum og möguleikum hugbúnaðar í safnaþjónustu.
Á Húsavík búa um 2300 manns, þar er öflugt félags- og menningarlíf og aðstæður til uppeldis barna
ákjósanlegar. Í bænum er framhaldsskóli, grunnskóli, leikskóli, tónlistarskóli og öflug heilbrigðisstofnun
(sjúkrahús og heilsugæsla) auk allrar almennrar þjónustu.
Launakjör eru samkvæmt samningum Launanefndar sveitarfélaga.
Upplýsingar um starfið veita Erla Sigurðardóttir, menningar- og fræðslufulltrúi í síma 464 6100, erla@nordurthing.is
og Eyrún Ýr Tryggvadóttir forstöðumaður bókasafnsins í síma 464 6166, bokasafn@nordurthing.is .
Skriflegum umsóknum skal skila til menningar- og fræðslufulltrúa Norðurþings; Ketilsbraut 7-9; 640 Húsavík. Umsóknarfrestur er til 2.
júní 2008.
Norðurþing er öflugt sveitarfélag sem einkennist af fjölbreyttu mannlífi og miklum sköpunarkrafti manns og náttúru.