Fara í efni

Blak vinsælt á Raufarhöfn!


Síðustu miðvikudaga hefur verið mikið líf og fjör í íþróttahúsinu, en þá eru blakæfingar. Mjög góð þátttaka er og hafa stundum 3 lið spilað.


Þetta eru mjög skemmtilegir tímar þar sem bæði kynin spila saman og hafa unglingarnir verið duglegir að koma. 

Þarna er kjörinn vettvangur fyrir „gamla“ Raufarhafnarbúa að kynnast „nýjum“ Raufarhafnarbúum sem koma m.a. frá Póllandi og Slóvakíu. Það er alltaf pláss fyrir fleiri og þeir sem hafa áhuga á að mæta, geta komið í íþróttahúsið á miðvikudögum kl. 17:30.