Dýrin í Hálsaskógi
25.04.2014
Nemendur Öxarfjarðarskóla sýna Dýrin í Hálsaskógi í Skúlagarði sunnudaginn 27. apríl kl. 15.00. Tónlistarstjórn í höndum Lisu McMaster. Miðaverð kr 2000 fyrir fullorðna og 1000 kr fyrir börn á grunnskólaaldri. Frítt fyrir börn á leikskólaaldri. Kaffiveitingar seldar í hléi. Ath. enginn posi. Skemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna!
Verið hjartanlega velkomin.
Nemendur Öxarfjarðarskóla