Ertu í atvinnuleit með viðskiptahugmynd í kollinum?
Frumkvæði er nýtt úrræði Vinnumálastofnunar sem unnið er í samstarfi við Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Megintilgangur verkefnisins er að styðja fólk sem þiggur atvinnuleysisbætur og er í atvinnuleit við að búa sér til eigin störf. Í úrræðinu Frumkvæði eiga atvinnuleitendur kost á fræðslu og leiðsögn til að kanna möguleika og tækifæri á að búa til eigið starf. Þátttakendur kanna þörf fyrir væntanlega þjónustu eða vörur sínar á markaði og gera viðskiptaáætlun um viðkomandi verkefni til að meta hvort verkefnið er raunhæft og hvað þurfi til svo að unnt sé að búa til starf.
Forsendur atvinnuleitanda fyrir þátttöku í úrræðinu Frumkvæði
- Að þátttakandi sé tryggður innan atvinnuleysistryggingakerfisins og þiggi nú þegar atvinnuleysisbætur. Einnig þarf þátttakandi að eiga a.m.k. sex mánuði eftir af bótatímabili sínu.
- Að þátttakandi skuldbindi sig til að vinna í fullu starfi að eigin frumkvöðlastarfi í samræmi við umsókn, hvort sem um er að ræða nýsköpunar- eða þróunarverkefni, framleiðslu eða þjónustu þannig að um fullnægjandi ástundun sé að ræða.
- Að þátttakandi taki þátt í fræðslu og vinnusmiðjum á vegum Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands á samningstímanum og þiggi leiðsögn hjá starfsfólki Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands.
- Að þátttakandi skili inn til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands verk- og tímaáætlun í byrjun tímabils eftir viðtal með verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar.
- Að þátttakandi sé í reglulegu sambandi við verkefnisstjóra Nýsköpunarmiðstöðvar á meðan unnið er að eigin viðskiptahugmynd, samkvæmt verk- og tímaáætlun, en þarf ekki að stunda virka atvinnuleit á meðan.
- Að þátttakandi skili viðskiptaáætlun eða sambærilegum gögnum til Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands innan þriggja mánaða frá því að úrræði hefst.
- Að þátttakandi sé fær um að taka þátt í fræðslu og námskeiðahaldi á íslensku og/eða skrifa viðskiptaáætlun á íslensku eða ensku.
Umsóknarform fyrir Frumkvæði eru í umsóknakerfi Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Umsókn er fyllt út á vefnum og send rafrænt til Nýsköpunarmiðstöðvar. Umsóknir eru afgreiddar mánaðarlega.