Fréttatilkynning
Fréttatilkynning
23. apríl 2018
V-listi Vinstri-grænna og óháðra í Norðurþingi hefur kynnt framboðslista til sveitarstjórnarkosninga árið 2018.
V-listinn hefur verið leiðandi í sveitarstjórn Norðurþings á líðandi kjörtímabili. V-listinn hefur átt stóran þátt í þeim mikla viðsnúningi sem náðst hefur í rekstri Norðurþings og komið mikilvægum málum í framkvæmd á tímabilinu. Listinn býður nú fram með bæði reyndu og nýju fólki sem kemur víða frá hinu víðfema svæði Norðurþings. Óli Halldórsson, formaður byggðarráðs Norðurþings á líðandi kjörtímabili leiðir listann. Annað sæti listans skipar Kolbrún Ada Gunnarsdóttur kennari og deildarstjóri, Berglind Hauksdóttir leikskólakennari í þriðja sæti og Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðingur og sveitarstjórnarmaður í fjórða sæti. Guðmundur H. Halldórsson málarameistari skipar fimmta sætið og Röðull Reyr Kárason þjónustufulltrúi sjötta sætið.
V-listinn hefur nokkra sérstöðu meðal annarra framboða í Norðurþingi og víðar að því leyti að konur eru í afgerandi meirihluta á listanum. Auk þess að konur skipi þrjú af fjórum efstu sætunum þá eru þær 11 talsins á móti 7 körlum á listanum í heild. Með þessu vill V-listi Vinstri-grænna og óháðra sýna í verki að tími sé kominn til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnarmálum á Íslandi og draga fram þau áherslumál sem konum eru hugleikin í almannaþjónustu og forgangsröðun almennt.
FJÖLSKYLDAN og UMHVERFIÐ eru megináherslumál V-listans í Norðurþingi árið 2018. Málefnaskrá listans verður kynnt á Húsavík laugardaginn 28. apríl í tilefni af heimsókn Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra.
V- listi Vinstri græn og óháðir í Norðurþing fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 er eftirfarandi:
1. Óli Halldórsson, Forstöðumaður Húsavík
2. Kolbrún Ada Gunnarsdóttir Grunnskólakennari Húsavík
3. Berglind Hauksdóttir Leikskólakennari Húsavík
4. Sif Jóhannesdóttir Þjóðfræðingur Húsavík
5. Guðmundur H. Halldórsson Málarameistari Húsavík
6. Röðull Reyr Kárason Þjónustufulltrúi Húsavík
7. Nanna Steina Höskuldsdóttir Verkefnastjóri og bóndi Raufarhöfn
8. Stefán L. Rögnvaldsson Bóndi Öxarfirði
9. Aldey Traustadóttir Hjúkrunarfræðingur Húsavík
10. Guðrún Sædís Harðardóttir Grunnskólakennari Reykjahverfi
11. Selmdís Þráinsdóttir Ìþròtta-og heilsufræðingur Húsavík
12. Silja Rún Stefánsdóttir Bústjóri Öxafirði
13. Aðalbjörn Jóhannsson Verkamaður Reykjahverfi
14. Jóna Birna Óskarsdóttir Leikskólaleiðbeinandi Húsavík
15. Aðalsteinn Örn Snæþórsson Lífræðingur Kelduhverfi
16. Sólveig Mikaelsdóttir Sérkennsluráðgjafi Húsavík
17. Trausti Aðalsteinsson Afgreiðslustjóri Húsavík
18. Þórhildur Sigurðardóttir Kennari Húsavík