Fara í efni

Gaman saman!

Nú fer að styttast í leikhúsferðina til Akureyrar þann 8. mars nk. að sjá Gullna hliðið og út að borða.

Lagt verður af stað frá N1 á Þórshöfn kl. 14.00 og komið við á Raufarhöfn við Kaffi Ljósfang um kl. 14.30. Verðum við Jarðskjálftasetrið á Kópaskeri um 15.15. Eftir það yrðu farþegar teknir upp í á afleggjurum við bæi eftir því sem við á.

Eins og áður var auglýst er matur á Greifanum um kl. 18.00 þar sem í boði er lambakjöt ásamt meðlæti og kaffi og konfekt á eftir. Leiksýningin hefst kl. 20.00. Að henni lokinni er heimferð.

Verð á mann er kr. 14.000. Pantið sem fyrst og í síðasta lagi sunnudaginn 16. febrúar í síma 465-2353, 846-3835 eða í tölvupósti á netfangið: hrund@kopasker.is

Takmarkaður miðafjöldi. Hrund og Rúnar Hóli Kelduhverfi Active North ehf.