Góð stemning á fyrstu dögum í menningarviku.
28.09.2014
Menningardagar hófust í gær 27.09.2014 á spurningakeppni fyrirtækjanna.
það voru 7 fyrirtæki sem kepptu um bikarinn Gáfnaljós Raufarhafnar.
Keppendur voru S.R.S, G.P.G, Áhaldahúsið, Ráðhúsið, Bjargey , H.H, og Verslunin Urð.
Gríðarleg stemning var í keppendum og áhorfendum.
Sigurvegarar kvöldsin voru H.H en þar kepptu Ríkharður Reynisson og Birna Björnsdóttir.