Listi Framsóknarmanna í Norðurþingi
10.04.2014
Framsóknarfélag Þingeyinga samþykkti, á fjölmennum félagsfundi á Húsavík í kvöld, einróma tillögu uppstillingarnefndar að lista Framsóknar fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi. Framsóknarflokkurinn er með fjóra fulltrúa í bæjarstjórn.
Gunnlaugur Stefánsson forseti bæjarstjórnar leiðir listann en bæjarfulltrúarnir Soffía Helgadóttir og Hjálmar Bogi Hafliðason skipa 2. og 3. sætið og ný á listanum í næstu 5 sætum eru Hróðný Lund, hjúkrunarfræðingur, Gunnar Páll Baldursson, hafnarvörður, Anný Peta Sigmundsdóttir, sálfræðingur, Björn Víkingur Björnsson, framkvæmdastjóri og Áslaug Guðmundsdóttir, íþróttakennari.
Listann skipa eftirtaldir:
- Gunnlaugur Stefánsson fors.bæjarstj./framkv.stj. Húsavík
- Soffía Helgadóttir bæjarfulltr./hagfræðingur Húsavík
- Hjálmar Bogi Hafliðason bæjarfulltr./kennari Húsavík
- Hróðný Lund hjúkrunarfræðingur Húsavík
- Gunnar Páll Baldursson hafnarvörður Raufarhöfn
- Anny Peta Sigmundsdóttir sálfræðingur Húsavík
- Björn Víkingur Björnsson framkvæmdastjóri Kópasker
- Áslaug Guðmundsdóttir íþróttakennari Húsavík
- Aðalsteinn Júlíusson lögreglumaður Húsavík
- Sigríður Benediktsdóttir bankaritari Kópasker
- Anna Björg Lindberg Pálsdóttir tómstundafulltrúi Húsavík
- Hjörvar Gunnarsson nemi Húsavík
- Aðalsteinn J. Halldórsson stjórnsýslufræðingur Húsavík
- María Guðrún Jónsdóttir verkakona Húsavík
- Anna Sigrún Mikaelsdóttir formaður FEBH Húsavík
- Birna Björnsdóttir varabæjarfulltr,/kennari Raufarhöfn
- Jónína Á Hallgrímsdóttir fv. sérkennari Húsavík
- Jón Grímsson bæjarfulltrúi Kópasker
Listann skipa átta karlar og tíu konur. Í efstu fjórtán sætum er jafnt kynjahlutfall.