Fara í efni

Nýtt gistiheimili á Raufarhöfn

HreiðriðSíðastliðið sumar opnaði gistiheimilið Hreiðrið, eða The Nest, á Raufarhöfn. Gistiheimilið er einstaklega vel staðsett við aðalgötu bæjarins og geta gestir notið útsýnis til allra átta. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á húsinu að innan sem utan, og þegar þeim lýkur verða 30 uppábúin rúm í boði fyrir gesti.
Í húsinu eru sameiginleg, fullbúin eldhús, setustofur og baðherbergi. Fallegar fuglamyndir prýða veggi Hreiðursins.
Gistiheimilið er opið allt árið. Ný heimasíða er í vinnslu; nesthouse.is.
Fyrirspurnir og bókanir info@nesthouse.is