Starfsmaður óskast til sumarafleysingar í Ráðhús Raufarhafnar
15.04.2016
Starfsmaður óskast til sumarafleysingar í Ráðhús Raufarhafnar.
Starfskraft vantar til sumarafleysingar í afgreiðslu Íslandspóst frá og með 16. júní til og með 22. júlí. Um er að ræða almenna póstafgreiðslu og bréfbera starf, samtals 80% staða.
Vinnutími er frá kl. 12:00 til 18:30. Póstafgreiðsla er frá kl.12:00 til 16:00 og póstútburður eftir þann tíma.
Hæfniskröfur.
Æskilegt er að viðkomandi hafi:
- Góða almenna tölvukunnáttu.
- Góða færni í íslensku og ensku.
- Lipurð og hæfni í samskiptum.
Greitt er samkvæmt gildandi kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og Framsýnar.
Umsóknarfrestur er til og með 13 maí.
Nánnari upplýsingar um starfið veitir Svava Árnadóttir Ráðhúsinu á Raufarhöfn eða í síma: 464-9859.
Starfsumsóknir sendist á skrifstofu sveitarfélagsins á Raufarhöfn og eða á netfangið svava@nordurthing.is