Verslunarhúsið á Kópaskeri til leigu
04.05.2014
Til leigu
Verslunarhúsið á Kópaskeri e.h.f, auglýsir hér með til leigu verslunarhúsið að Bakkagötu 10 Kópaskeri .
Hugmyndin er að leigja það út undir rekstur dagvöruverslunar. Í húsinu er til staðar kælar,hillurekkar og ýmis annar búnaður sem þarf til rekstrar slíkrar verslunar. Húsnæðið er rúmgott og gefur það möguleika á að setja upp veitingasölu samhliða verslunarrekstri. Fyrir liggur nokkuð ítarleg greining og rekstraráætlun fyrir slíka verslun, sem m.a. er byggð á eldri gögnum um rekstur í þessu húsi.
Allar nánari upplýsingar fást hjá eftirtöldum stjórnarmönnum .
Jón Grímsson: S.894-0033
Sigurlína Jóhanna Jóhannesdóttir: S. 465-2169
Gunnar Björnsson: S.822-6108
Stefán Haukur Grímsson: S.894-0172
Reinhard Reynisson:S.464-0418