Grenjaðarstaður
Grenjaðarstaður er glæsilegur torfbær í Aðaldal. Jörðin er landnámsjörð og fornt höfuðból, kirkjustaður og prestssetur, og þar var áður starfrækt pósthús. Grenjaðarstaður þótti á sinni tíð mestur og reisulegastur allra bæja í héraðinu, enda um 775 m2 að stærð, einn stærsti torfbær landsins. Elsti hluti hans var reistur árið 1865 en búið var í bænum til 1949.
Árið 1958 var hann opnaður sem byggðasafn með á annað þúsund gripa sem fólk hafði gefið í safnið. Það er einstök upplifun að ganga um bæinn og ímynda sér hvernig fólk lifði þar, bæði fyrir börn og fullorðna.
Sumarið 2010 var opnuð lítil sýning um pósthúsið í bænum og í Hlöðuloftinu (þjónustuhúsinu) má fræðast um þróun torfbæjarins í máli og myndum. Þar er góð aðstaða til að borða nestið sitt og þiggja kaffi og te sem boðið er uppá.