Völundur Snær Völundarson f.h. Húsavík Food Corporation ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir veitingatjald á þaki Hafnarstéttar 7
Málsnúmer 201204061
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 92. fundur - 09.05.2012
Óskað er eftir leyfi til að reisa á þaki björgunarsveitarhúss sambærilegt tjald og þar hefur verið undanfarin sumur. Tjaldið megi standa til 15. september n.k. Skipulags- og byggingarnefnd leggur til við bæjarstjórn að veitt verði leyfi fyrir tjaldinu til 15. september n.k.