Börkur Emilsson f.h. Sölkusiglinga sækir um pláss við flotbryggju fyrir 23 br.tonna eikarbát
Málsnúmer 201210023
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 22. fundur - 17.10.2012
Börkur Emilsson, fh. Sölkusiglinga, sækir um bryggjupláss við flotbryggju fyrir 23 tonna eikarbát sem nota á til siglinga með ferðamenn. Framkvæmda- og hafnanefnd bendir umsækjanda á að hafa samband við hafnarvörð vegna erindisins en hann raðar skipum og bátum í höfnina.