Umhverfis- og auðlindaráðuneyti óskar eftir umsögn vegna urðunarstaða við Húsavík og Kópasker
Málsnúmer 201211073
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 62. fundur - 30.11.2012
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá umhverfis- og auðlindaráðuneytinu þar sem óskað er eftir umsögn vegna áframhaldandi rekstrar urðunarstaða við Húsavík og Kópasker. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við veitingu leyfis til áframhaldandi reksturs urðunarstaða við Húsavík og Kópasker.