Rögnvaldur Harðarson sækir f.h. Davíðs Búa Halldórssonar um byggingarleyfi fyrir frístundahús að Rjúpnalundi 10
Málsnúmer 201302065
Vakta málsnúmerSkipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 102. fundur - 20.03.2013
Óskað er eftir leyfi til að byggja 100 m² frístundahús að Rjúpnalundi 10 í Öxarfirði. Húsið er steinsteypt með einhalla þaki. Teikningar eru unnar af Rögnvaldi Harðarsyni á Rögg teiknistofu. Erindið var samþykkt af byggingarfulltrúa 27. febrúar s.l. enda húsið talið falla innan ramma ákvæða deiliskipulags.