Stefán Guðmundsson f.h. Gentle Giants-Hvalferðir ehf. sækir um stöðuleyfi fyrir 9 m² söluhús á Hafnarstétt
Málsnúmer 201305064
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 30. fundur - 12.06.2013
Stefán Guðmundsson fyrir hönd GG sækir um stöðuleyfi fyrir söluhús/tjald á Hafnarstétt. Framkvæmda- og hafnanefnd hafnar erindinu enda muni staðsetning söluhúss/tjalds á umbeðnum stað skapa aukna umferðarhættu á svæðinu. GG á þegar lóð á svæðinu fyrir neðan Bakka.