Erindi frá Þresti Eysteinssyni vegna skógræktarinnar í Skálamel
Málsnúmer 201307024
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 31. fundur - 10.07.2013
Borist hefur munnlegt erindi frá Þresti þar sem hann býðst til að grisja gamla skógræktarreitinn í Skálamel. Greiðsla fyrir verkið yrði það timbur sem til félli við grisjunina. Framkvæmda- og hafnanefnd fagnar erindinu enda verði verkið unnið í samráði við garðyrkjustjóra sveitarfélagsins.