Samtök um kvennaathvarf, umsókn um rekstrarstyrk fyrir árið 2014
Málsnúmer 201310130
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 86. fundur - 07.11.2013
Fyrir bæjarráði liggur beiðni um rekstrarstyrk frá Samtökum um kvennaathvarf. Beiðninni fylgir fjárhagsáætlun ársins 2014. Samtökin óska eftir að Kvennaathvarfinu verði veittur rekstrarstyrkur fyrir komandi rekstrarár að upphæð 100.000.- krónur. Bæjarráð þakkar bréfritara fyrir erindið en sér sér ekki fært að verða við því að þessu sinni.