Anna Romanska og Kristín Þormar óska eftir að gerast umsjónarmenn félagsheimilisins Hnitbjarga á Raufarhöfn
Málsnúmer 201311147
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 36. fundur - 11.12.2013
Anna og Kristín sækja um að sjá um húsvörslu í félagsheimilinu Hnitbjörgum ásamt því að reka barinn Félagann þar. Í umsóknarbréfinu gera þær nánari grein fyrir hugmyndum sínum um reksturinn. Framkvæmda- og hafnanefnd felur umsjónarmanni fasteigna að ganga til samninga við bréfritara.