Íþróttastarf í sveitarfélaginu
Málsnúmer 201401056
Vakta málsnúmerTómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings - 26. fundur - 14.01.2014
Tómstunda- og æskulýðsfulltrúi fór yfir íþróttastarf í sveitarfélaginu. Ljóst er að auka þarf með einhverjum hætti framboð á íþrótta- og tómstundastarfi í austurhluta sveitarfélagsins. Tómstunda- og æskulýðsnefnd felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að fylgja eftir málinu og stuðla að samstarfi milli íþróttafélaga á svæðinu.