Atli Vigfússon f.h. landeigenda á Laxamýri óskar eftir viðgerðum á girðingu milli Saltvíkur og Laxamýrar
Málsnúmer 201402097
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 39. fundur - 19.03.2014
Fyrir framkvæmda- og hafnanefnd liggur erindi frá Atla Vigfússyni f.h. landeigenda á Laxamýri. Fram kemur í erindi að óskað er eftir viðræðum við sveitarfélagið um viðgerðir á girðingu milli Saltvíkur og Laxamýrar. Framkvæmda- og hafnanefnd þakkar bréfritara fyrir erindið og lýsir sig reiðubúið til viðræðna um málefnið.