Sýslumaðurinn á Húsavík ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Steinunni Sigvaldadóttur fyrir Gamla Bauk
Málsnúmer 201405071
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 107. fundur - 28.05.2014
Fyrir bæjarráði liggur umsagnarbeiðni frá Sýslumanninum á Húsavík vegna leyfisveitingar til handa Steinunni Sigvaldadóttir, f.h. Gamla Bauks ehf. þar sem sótt er um nýtt rekstrarleyfi til sölu veitingu veitinga að Hafnastétt 11 í nýju húsnæði þar sem Café Skuld stóð. Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að þeir aðilar sem um slík leyfi fjalla geri slíkt hið sama.