Fundir sveitarstjórna með fjárlaganefnd Alþingis 2014
Málsnúmer 201409059
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 117. fundur - 18.09.2014
Fyrir bæjarráði liggur erindi frá Fjárlaganefnd Alþingis þar sem fulltrúum sveitarfélaga og/eða landshlutasamtaka er boðið til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarps ársins 2015. Bæjarráð felur bæjarstjóra að setja sig í samband við starfsmann Fjárlaganefndar og bóka fund með nefndinni.