Georg Erlingsson sækir um styrk vegna gerðar stuttmyndar
Málsnúmer 201410013
Vakta málsnúmerFræðslu- og menningarnefnd Norðurþings - 41. fundur - 15.10.2014
Georg Erlingsson sækir um styrk að upphæð kr. 75.000 vegna gerðar stuttmyndarinnar "Förin." Myndin verður kvikmynduð í Garðskirkju í Kelduhverfi. Bæði börn og fullorðnir úr sveitinni leika í myndinni og kirkjukór Garðskirkju syngur. Fræðslu- og menningarnefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 30.000 sem greiðist í samræmi við framgang verkefnisins.