Þjóðvegurinn í gegnum Húsavík og Raufarhöfn, ítrekun
Málsnúmer 201411016
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 51. fundur - 11.02.2015
Framkvæmda- og þjónustufulltrúi gerði grein fyrir stöðu málsins. Nefndin ítrekar enn fyrri kröfur um að Vegagerðin ráðist í aðgerðir til að auka öryggi og draga úr umferðarhraða þjóðvega sem liggja í gegnum byggðakjarna í Norðurþingi.