Sýslumaðurinn á Norðurlandi eystra, ósk um umsögn vegna leyfisveitingar til handa Örlygi Hnefli Örlygssyni, Húsavík
Málsnúmer 201504036
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 137. fundur - 16.04.2015
Fyrir bæjarráði liggur beiðni frá Sýslumanninum á Norðurlandi eystra vegna leyfisveitingar til handa Örlygi Hnefli Örlygssyni, f.h. Gistiheimilis Húsavíkur ehf. vegna Höfða 20
Bæjarráð veitir jákvæða umsögn að því tilskyldu að aðrir sem um leyfið fjalla geri slíkt hið sama.
Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 128. fundur - 12.05.2015
Óskað er umsagnar um leyfi til sölu gistingar í flokki II í íbúð 0201 að Höfða 20. Örlygur Hnefill vék af fundi við afgreiðslu þessa erindis.
Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu leigð út til gistingar þau rými íbúðarinnar sem til þess eru ætluð skv. samþykktum teikningum.
Skipulags- og byggingarnefnd veitir jákvæða umsögn um erindið, enda verði eingöngu leigð út til gistingar þau rými íbúðarinnar sem til þess eru ætluð skv. samþykktum teikningum.