Eigendur að Stakkholti 9, Húsavík óska eftir bættum frágangi við lóðina
Málsnúmer 201505032
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 57. fundur - 13.05.2015
Eigendur Stakkholts 9, Guðmundur Helgi Jóhannesson og Hilda Rós Pálsdóttir óska eftir að Norðurþing lagi jarðveg umhverfis lóð hússins og komi honum í þá hæð sem gert er ráð fyrir í deiliskipulagi.
Framkvæmda- og hefnanefnd samþykkir að láta hanna íbúðahverfið á Langholti enda forsenda þess að hægt sé að hæðarsetja svæðið. Í framhaldi verður landið sett í rétta hæð.