Framkvæmdaáætlun fyrir uppbyggingu hafnarsvæðisins á Húsavík
Málsnúmer 201507011
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 60. fundur - 07.07.2015
Sigurður Sigurðarson frá Siglingasviði Vegagerðarinnar mætti á fund nefndarinnar og gerði grein fyrir minnisblaði þar sem núverandi mynd er dregin upp af fyrirhuguðum framkvæmdum í/á/við höfnina á Húsavík. Unnið er að því að vinna fastmótaða framkvæmdaáætlun í samvinnu við Siglingasvið Vegagerðarinnar og stefnt er að því að leggja hana fram eins fljótt og auðið er. Er þetta háð útboði á framkvæmdinni og þeirri tímalínu sem unnið er eftir.