Ásta Magnúsdóttir óskar eftir að Norðurþings setji upp Skatepark á Húsavík
Málsnúmer 201508081
Vakta málsnúmerTómstunda- og æskulýðsnefnd Norðurþings - 44. fundur - 21.09.2015
Tómstunda- og æskulýðsnefnd hefur borist erindi um að Norðurþing komi upp aðstöðu fyrir hjólabrettafólk eða "Skatepark" í sveitarfélaginu.
Tómstunda- og æskulýðsnefnd þakkar Ástu fyrir erindið. Nefndin felur tómstunda- og æskulýðsfulltrúa að kanna mögulegar staðsetningar og kostnað við uppbyggingu á slíku svæði.