Fara í efni

Fasteignafélag Húsavíkur óskar eftir leyfi til að breyta þaki Höfða 24d og innrétta þar íbúðir

Málsnúmer 201511021

Vakta málsnúmer

Skipulags- og byggingarnefnd Norðurþings - 134. fundur - 17.11.2015

Óskað er eftir leyfi til að lyfta þaki og innrétta 6 stúdíóíbúðir að Höfða 24d. Meðfylgjandi umsókn eru rissmyndir af fyrirkomulagi og undirritað samþykki nágranna.

Skipulags- og byggingarnefnd fellst fyrir sitt leyti á að þak verði hækkað og innréttaðar stúdíóíbúðir í rýminu. Nefndin áréttar þó að ekki verði farið í framkvæmdir fyrr en lagðar hafa verið fram og samþykktar fullnægjandi teikningar hjá byggingarfulltrúa.