Losunarsvæði fyrir steypubrot, steypuafganga og möl
Málsnúmer 201511040
Vakta málsnúmerFramkvæmda- og hafnanefnd Norðurþings - 64. fundur - 11.11.2015
Verktaki við Bökugarð á Húsavík hefur tekið fyrir losun á steypuafgöngum, steypubroti og öðru viðlíka í uppfyllinguna við garðinn.
Framkvæmda- og hafnanefnd ítrekar að einstaklingum er skylt að losa allan úrgang í flokkunarstöð. Verktökum er bent á að hafa samband við framkvæmda- og þjónustudeild vegna losunar á umræddum úrgangi.