Stuðningur við millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavík
Málsnúmer 201511075
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 159. fundur - 19.11.2015
Fyrir bæjarráði liggur tilkynning um að Ríkisstjórn Íslands hafi ákveðið, að tillögu forsætisráðherra, að fela iðnaðar- og viðskiptaráðherra að hefja undirbúning að stofnun Markaðsþróunarsjóðs og Áfangastaðasjóðs með það að markmiði að koma á reglulegu millilandaflugi um aðra flugvelli en Keflavík.
Bæjarráð fagnar ákvörðun Ríkisstjórnar Íslands um stofnun Markaðsþróunarsjóðs og Áfangastaðasjóðs og lýsir ánægju með áform um aukið millilandaflug um aðra flugvelli en Keflavík.