Fasteignafélag HN ehf - leiga húsnæðis
Málsnúmer 201512018
Vakta málsnúmerBæjarráð Norðurþings - 161. fundur - 10.12.2015
Fyrir bæjarráði liggur til kynningar ársreikningur Fasteignafélags HN ehf frá árinu 2014 og leigusamningur vegna fasteignarinnar Aðalbrautar 2 á Raufarhöfn sem rennur út um nk. áramót.
Bæjarráð leggur áherslu á að finna sem fyrst aðila til að halda áfram hótelrekstri í Aðalbraut 2 á Raufarhöfn og felur bæjarstjóra að leita leiða til þess að af því verði.