Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, ósk um mætingu á fund nefndarinnar
Málsnúmer 201603052
Vakta málsnúmerByggðarráð Norðurþings - 169. fundur - 10.03.2016
Fyrir byggðarráði liggur beiðni til Norðurþings, frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, um að mæta á fund nefndarinnar til að ræða 371. mál, Náttúrufræðistofnun Íslands og náttúrustofur og verndun Mývatns og Laxár í Suður-Þingeyjarsýslu (sameining stofnana).
Sveitarstjóri mætir á fundinn fyrir hönd Norðurþings